Gæs í Hofstaðaheiði

Svona litu bælin okkar út þennan morguninn.

Það lágu 15 í valnum.

Tilbúnir til heimferðar.
Það er orðið afskaplega sjaldgæft að maður kíki í gæs. Sú var nú tíð að við Dóri lágum í þessu allt haustið, stundum dag eftir dag. Keyrðum sveitina þvera og endilanga í leit af fugli og ástandið þurfti að vera býsna slæmt svo við nenntum ekki að leggjast út að morgni.

Nú nennir maður þessu æ sjaldnar, en svo er þetta voðalega fínt þegar maður drullar sér af stað. Svolítið eins og að vera kominn heim. Taka til allt gamla góða dótið; kaffibrúsann, bakpokann, gæsaflautuna, skotapokann og Cabelas gallann sem ég keypti 1997. Feluhettan sem ég nota mest er líka sennilega orðin 20 ára gömul og gatslitin. Þetta er svolítil nostalgía.

Ég og Þórður skruppum í morgun í Hofstaðaheiðina og fengum svolítið flug. Við lágum á smá "eyju" í túní Leifs (sjá fyrstu mynd) og notuðumst við "liggjandi" byrgi sem við reyttum á sinu. Það var svolítið eftitt að opna byrgið sem ég var í og vil ég meina að það hafi kostað mig allavega 5 gæsir. Þórur var s.s. heldur ekki að gera neinar rósir en við enduðum samt með 15 (25 hefði verið fínt). En eins og má sjá á fyrrnefndri mynd.

Nú er ég kominn til Akureyrar og er að drulla á mig úr þreytu. Er jafnvel að spá aðeins í að halla mér........

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap