Fat Head Pizza

Reyndi að mála í fyrradag, sem varð svo til þess að í gærkvöldi skrifaði ég einhvern hræðilegan sjálfsvorkunarpistil hérna á bloggið; um hvað ég væri að sökka og ætti mikið bágt þegar kemur að listsköpun. Ég fékk ennþá meiri óbeit á mér fyrir vikið, eyddi loks pistlinum og fór í göngutúr. Kom heim, hlustaði á Nick Cave og tók smá hugleiðslu.

Í dag er ég mjög góður og mér líður fantastic. Þess vegna ætla ég að vera svo örlátur við ykkur vini mína, að ég ætla að gefa ykkur uppskrift af ketó pizzubotni sem ég elska. Það besta við þessa uppskrift er að börnin elska þetta líka.

1 bolli rifinn ostur
2 msk rjómaostur
3/4 bolli möndlumjöl
1 egg
Krydd eftir smekk (ég nota salt, pipar, pizzakrydd og smá hvítlauksduft).

Setjið ost og rjómaost í pott og hitið við vægan hita, þar til þetta rennur saman. Bætið við kryddi og möndlumjöli þar til þetta verður einsleitt og deigkennt. Hrærið egg út í og passið að hitinn sé ekki of mikill svo eggið hlaupi ekki.

Þegar ég flet degið út set ég það ofaná fjölnota bökunarpappír, set aðra örk ofaná og vinn það varlega niður í hæfilega þykkt. Síðan gatar maður með gaffli og bakar við 180-200°C á blástri þar til þetta verður unaðslega karmellugyllt. Stundum tek ég það út í millitíðinni og sting aðeins í það með gaffli ef það fer að bubbla.

Að lokum setur maður sósu, ost og álegg og aftur inn í ofn. Þar sem þetta þarf stutta stund í ofninum steiki ég nú yfirleitt áleggið áður en ég set þetta í ofninn. Þetta borða ég með kokteilsósu og hvítlauksolíu.

Knús á ykkur

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap