Ekki orð að marka það sem ég segi
Myndin tengist fréttinni ekki rassgat. |
Ég er maður mikilla andstæðna. Mikilla öfga myndu sumir segja. Ég fæ oft ný áhugamál og verð hugfangin af þeim. Á tímabili hafði ég áhyggjur af þessu og fannst ég vera að grauta í allt of mörgu, þjóta stefnulaust á milli, oft án þess að ná einhverjum teljandi árangri.
Ég er hættur að hafa áhyggjur af þessu og mér finnst ég bara ríkari fyrir vikið. Þetta eru jú bara áhugamál. Ég missi nefnilega sjaldan alveg áhugann á einhverju, bæti frekar bara einhverju við og legg hitt á hilluna um stund. Ég hef ennþá áhuga á golfi, skotveiðum, hlaupum, myndlist, bókum, hjólreiðum og crossfit, svo eitthvað sé nefnt. Ég stunda þetta allt upp að vissu marki, ef frá er talið golfið sem er búið að vera á ís í nokkur ár.
En eins og þeir sem kíkja hérna inn og lesa bloggið mitt vita, þá hafa hjólreiðarnar átt huga minn allan upp á síðkastið. Ég held varla í við sjálfan mig þegar kemur að því að skipuleggja ný ævintýri og setja mér markmið. Það nýjasta, að hjóla yfir hálendi Íslands.
Ég og Þolli (sem fór með mér í hjólaferðina) höfum mikið rætt saman upp á síðkastið um allskyns hluti sem við viljum ná að gera. Hjóla um norður Noreg, hjóla niður Evrópu, hjóla yfir hálendi Íslands og fara á hreindýraveiðar á svæði 5, svo eitthvað sé nefnt. En maður verður að forgangsraða og vera skynsamur. Sumt af þessu getur maður t.d. gert þegar maður er orðinn gamall (ef maður er heppinn) en annað er mjög líkamlega krefjandi.
Hjólreiðar yfir hálendi Íslands eru klárlega krefjandi en það bráðliggur ekkert á því að gera það. Ég er búinn að vera með smá bakþanka með að skipuleggja ferð yfir hálendið næsta sumar. Þar kemur einna helst inn í að ég þyrfti að kaupa mér alveg nýtt hjól og kaupa töluvert af búnaði sem ég ekki á fyrir. Og svo er ég að fara út með börnunum og mér finnst að ég geti nýtt þá ferð betur.
Ég er s.s. aftur farinn að skoða það að hjóla eitthvað um Evrópu. Guðrún getur tekið við börnunum í Danmörku og ég svo haldið mínu striki og hjólað í 3 vikur. Ég er farinn að plotta upp leið sem er ca. svona; frá Lundi til Trelleborg, ferja til Póllands-Þýskaland-Tékkland -Austurríki-Slóvenía-Króatía. Er það ekki eitthvað?
En eins og þið vitið á ég ábyggilega eftir að breyta þessu margoft.
Ummæli