Dagur í lífi einstæðs föðurs
Svona hefur dagurinn verið hjá mér:
07:35 - Hjólum í bakarí að kaupa nesti fyrir Brynleif og svo í skóla
07:55 - Stimpla mig inn í vinnu
12:10 - Fer í ræktina (fæ far að þessu sinni)
13:10 - Vinnan aftur
16:00 - Hjóla á leikskólann að ná í Dagbjörtu
16:15 - Renni yfir húsið og geng frá þvotti (er að fara að sýna það)
17:00 - Show time!
17:30 - Hanga í tölvunni
18:00 - BRB kemur heim
18:00 - Fara í Nettó og borða kvöldmat á Heitur Matur.
18:30 - Fara heim og láta BRB læra
19:00 - Fréttir og kaffi
20:00 - Börnin í háttinn
20:30 - Úlfatíminn minn hefst
22:00 - Hugleiðsla
22:15 - Les....zzzzzzzz
Ég á minn eigin úlfatíma (eða ég kalla hann það að minnsta kosti), og þó mér finnist gott þegar börnin eru sofnuð, þá veit ég yfirleitt ekki neitt hvað ég á af mér að gera í framhaldinu. Á meðan ég er ekki að mála endar það nú yfirleitt með einhverju smá glápi, hangsi í tölvu og svo fer ég bara að hugleiða, lesa og sofna frekar snemma, milli tíu og tólf.
En er þetta týpískur dagur í lífi mínu? Já svona að flestu leiti (þegar ég er með börnin). Undantekningin er sú að við borðum aldrei úti. Ég bara nenni ekki matarstússi í kvöld og veit líka að krökkunum á eftir að finnast þetta geðveikt.
Í gær byrjaði DLB að æfa fótbolta og það á væntanlega eftir að flækja skipulagið aðeins. Æfingarnar eru á KA vellinum þennan mánuð, en í október færast þær yfir í Bogann. Þær byrja 16:15 og því ljóst að ef ég ætla með hana á þær æfingar þarf ég að fara fyrr úr vinnu. Svo þarf ég að hjóla með hana í hjólakerru, taka strætó eða leigubíl. En það er bara verkefni til að leysa.
En afhverju er ég að skrifa þetta allt upp? Ég veit það ekki, kannski bara til að minna mig á að lífið er að stærstum hluta dagleg rútína. Verður lífið nokkuð betra en þetta? Þarf maður alltaf að vera að bíða eftir einhverju öðru betra mómenti? Ég veit ekki með ykkur, en þessi dagur í dag er frábær dagur og ég reyni bara að njóta hans í botn. Ég er þakklátur fyrir að vera með góða vinnu og eiga heilbrigð börn sem þarf að ala upp og passa. Ég er þakklátur fyrir mína daglegu rútínu með öllu sínu veseni og stússi. Hvað ætti ég s.s. að vera að gera annað?
Ummæli