Síðustu dagar

Það er hallærislegt frá því að segja, en ég hef ekki náð að fara eftir þessu blessaða mataræði sem ég bloggaði um í síðasta pósti. Ekki alveg allavega. En ég er samt búinn að éta mikið grænmeti og ekkert nammi. Eina svindlið hefur verið 3 rískökur með súkkulaði og smá kex með smjöri í vinnunni. Ég hef hinsvegar alveg haldið 16:8.

Það er ótrúlegt hvað ég finn fljótt á líkamanum hvað ég er að láta ofaní mig. Ég held að þetta fari að skipta meira máli með aldrinum. Sú var allavega tíð að maður gat slakað í sig stórri pizzu og fullt af nammi og var bara góður daginn eftir. En svo breytast efnaskiptin í manni og maður verður meira picky á næringu. 

En það er líka góð tilhugsun að á endanum verði maður farinn að borða mat sem lætur manni líða vel í staðinn fyrir að vera bara með útlitslegar pælingar og áhyggjur af aukakílóum. Ég vil bara hafa næga orku til að hreyfa mig og láta mér líða vel. 

Over and out!

Ps. Ég er að spá í að éta zucchini og baunir í kvöldmat. Gæti ekki verið mikið ódýrara.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap