Dagbók vikunnar
Það hefur verið "krakkalaus" vika hjá mér og því hef ég geta leyft mér að hjóla meira og sprikla út um kvippinn og kvappinn, miðað við vikuna á undan. Á mánudaginn hjólaði ég Eyjafjarðarhring og á miðvikudaginn hjólaði ég svo alla leið að Þormóðsstöðum í Sölvadal og til baka á ferðahjólinu (90km). Á föstudaginn tók ég svo brútal 40 km sprett á racernum þar sem ég hélt 31 km/klst meðalhraða, sem er mikið fyrir mig.
Ég fór held ég bara einu sinni í ræktina í þessari viku og það var til að gera styrktaræfingar fyrir vinstri öxlina á mér. Hún fór úr skorðum í þarsíðustu viku og ég get ekki tekið almennilegar æfingar. Ég er að reyna að styrkja á mér bakið og auka liðleika til að ná mér á réttan kjöl aftur. Æfingin hafði ekki góð áhrif á mig- allavega ekki skammtíma. Einhverjar æfingar sem ég gerði eru að espa upp einhverjar bólgur. Ég þarf því að fara varlega.
Í gær gengum við Þórður inn Seldal frá Bakkaseli. Ég er búinn að vera að lesa Fátækt fólk aftur og hef lengi ætlað mér að skoða þessar söguslóðir. Við ætluðum að fara upp á Almenningsfjall en ég reyndi uppgöngu á vondum stað og varð frá að hverfa. Samt var þetta 15 km góður göngutúr og ég finn alveg fyrir þessu í fótunum í dag. Magnað hvernig það að vera í góðu formi í einhverju, að hjóla t.d., þarf ekki endilega að þýða að maður sé ægilegur göngugarpur. Þetta þúfnabrölt og að ganga niður brekkur reyndi alveg ágætlega á.
Nú er síðasti dagur vikunnar og ég kominn með hálsbólgu. Mig langaði til að klára 200 km viku af hjólreiðum á Strava en er bara kominn í 166 km. Veit ekki hvað er sniðugt að gera. Ég reyndar er ábyggilega búinn að hjóla 20-30 km "ótrakkað" innanbæjar, þannig ég kannski bara tek því rólega í dag og hvíli mig fyrir komandi átök með börnunum.

Ummæli