Að rita niður markmið
Það er stundum sagt að til að auðvelda manni að ná einhverjum markmiðum sé alltaf best að skrifa þau niður. Ég ætla því að prufa að gera það núna í von um að það komi mér í rétta átt aftur hvað varðar mataræðið.
Áður en ég fór í hjólaferðina í Svíþjóð í júlí var ég búinn að vera á ágætu róli í æfingum en mataræðið var s.s. ekkert sérstakt. Í vetur og vor þegar ég var að prufa ketó og 16:8 tók ég nefnilega eftir því að ég var helvíti sprækur á ævingum- sérstaklega í crossfit. Svo leið mér bara almennt vel í líkamanum og hafði mikla orku.
Í hjólaferðinni nennti ég ekki að hugsa of mikið um hvað ég lét ofaní mig og át alveg frá því ég vaknaði og þar til ég lagðist á koddann. En ég var líka að brenna 3-4000 auka kaloríum á dag. Þegar við komum til Västerås fór ég bara að éta sama mat og Þolli og Lísa borða venjulega sem er mikið af trefjum á morgnana og svo máltíðir þar sem meginuppistaðan er grænmeti. Og við tókum æfingar og hlupum.
Eftir að ég kom til Íslands hélt ég svo áfram að éta svoleiðis mat, fastaði fram að hádegi og æfði vel. Ég tók eftir miklum mun á mér, missti 2 kíló á stuttum tíma og leið vel. En svo snérist allt til verri vegar.
Ég er búinn að vera með börnin þessa viku og við höfum verið í bullinu með matinn. Pizzur, snarl með brauði, smá nammi, mikill mjólkurmatur og kökur og kaffi í vinnunni. Heilsan síðustu 3 daga hefur verið slæm. Ég er búinn að vera punkteraður á crossfit æfingum, stirður og ég get ekki hjólað 30 kílómetra öðruvísi en að hlaða í mig orku áður. Mér líður eins og dópista. Ég er óánægður með sjálfan mig og langar ekki að lifa svona áfram.
Ég ætla því að þrengja matargluggann minn og skera niður kolvetnin. Ég er að spá í að byrja á að vinna mig niður í 16:8 aftur og prufa jafnvel tímabil þar sem ég tek One Meal A Day (OMAD). Ég þarf samt að stilla það eitthvað af í sambandi við æfingar. Ég hef ekki gert upp við mig hvort ég taki hreint keto, en ég ætla allavega að þurrka alveg út sykur og hveiti.
Til að auðvelda mér þetta ætla ég að skrifa niður fyrstu 3 dagana:
Laugardagur 17.08.2019:

- Morgunmatur: tröllahafrar, fræ, kókosflögur og súrmjólk.
- Hádegismatur: rest af fiski, kartöflum og hrásalati.
- Kvöldmatur: kjúklingur og grænmeti
Sunnudagur 18.08.2019
- Hádegismatur: kjúklingur og grænmeti (afgangar)
- Kvöldmatur: cobb salat
Mánudagur 19.08.2019
- Hádegismatur: mikið grænmeti + prótein
- Kvöldmatur: eitthvað ketó
Restin er beisík, ekkert nart fyrir utan þessar máltíðir. Frá og með mánudeginum verður bara einn bolli af kaffi fyrir hádegi, einn eftir matinn og einn í kaffinu. Bara te eftir kvöldmat.
Ég blogga svo á mánudaginn og læt vita hvort þetta fari ekki vel af stað. Ég vil hvetja áhugasama að horfa á myndbandið hér að neðan:
Ummæli