Perth dagur 1
Mynd frá Perth |
Það fyrsta sem ég gerði þegar ég var búinn að koma mér fyrir var að skoða hvort það væru ekki opnar einhverjar útivistarbúðir svo ég geti keypt mér kíki. Mig langaði svo til að horfa á sjónvarpið í kvöld. En merkilegt nokk, þá er nánast bara allt lokað í dag- á mánudegi. Flestir veitingastaðir eru reyndar opnir, en söfn og önnur afþreying, og mjög margar búðir, eru bara lokaðar! Mér finnst þetta reyndar gefa til kynna að samfélagiði hér sé ekki jafn sjúkt og heima.
Jæja ég ætla að fara að koma mér af stað og finna mér eitthvað að éta. Hugsanlega Indverskt.
Ummæli