Mývó
Búinn að setja 3 af 5 töskum á hjólið. Það verður nóg í þessa ferð. |
Er að spá í að hjóla í Mývó á morgun. Það má deila um hvort það sé sniðugt því ég hef ekki hjólað lengra en 40 km í beit í allt sumar. Í þokkabót verður þetta líka nokkuð mikið þyngri burður en ég er vanur, og það með Víkurskarðinu, Fljótsheiðinni og Mývatnsheiðinni. En ég ætla svo sem að gefa mér góðan tíma í þetta og reyna að hvíla mig reglulega.
Stefni að því að leggja af stað um kvöldmat og ætli ég verði þá ekki kominn á leiðarenda um kl. 01.00 ef allt gengur að óskum. Á eftir að græja eitthvað smotterí, kaupa slöngu og tína saman ferðaverkfæri, hleðslutæki, hlífðarfatnað og eitthvað svoleiðis. Svo ætla ég að kaupa gott nesti og hlusta á podcast á leiðinni. Þetta verður æði.
Ummæli