Mývó-Akureyri-Reykjavík-Skotland

Smá stopp fyrir Brúnarbrekkuna.

Jæja, þá er maður búinn að láta verða af því að hjóla í Mývatnssveitina frá Akureyri. Lagði af stað í föstudaginn um kvöldmatarleitið. Greip með mér einn Subway og var svo vel nestaður af hnetum og Snickers. Nú þarf ég að fara að kíkja á markmiðin mín og sjá hvað ég á eftir að gera það sem eftir lifir sumars.

Ferðin gekk ágætlega. Ég hélt rúmlega 15 km meðalhraða sem ég held að sé ágætt þegar maður er svona klifjaður og þarf að fara yfir 3 fjallvegi. Lappirnar voru í góðu standi mest alla leiðina en nýji Brooks hnakkurinn er ekki alveg að gera sig ennþá- ég var helaumur í rassinum. Ég verð að ná nokkrum löngum ferðum í viðbót fyrir Svíþjóðarferðina til að sjá hvort hann venjist ekki. Annars verð ég að skipta honum út.

Nú er ég kominn aftur til Akureyrar og er að setja í tösku fyrir utanlandsferðina. Kominn með þetta venjulega og órökrétta ferðastress. Þetta hefur alltaf verið regla hjá mér þegar ég er að fara út þó ég sé vel sjóaður í þessu.

Ég er að fara til Perth í Skotlandi þar sem ég mun sitja Evrópufundi um gæsastofna og stjórnunar- og verndaráætlanir. Þetta verður ábyggilega fínt og gaman að hitta fólk sem ég hef verið í samskiptum við í tölvupósti út af ýmsum verkefnum.

Æfingauppgjör vikunnar: Ætli ég hafi ekki farið í 2 crossfit tíma og hjólað 180 km í 4 ferðum (hjólaði 30 í dag). Tek með mér hlaupaskó til Skotlands og ætla að hlaupa 2 x 5 km, taka efripartsæfingar og jafnvel teygjur og liðleika. Það þýðir ekkert að slaka á.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap