JBL Clip 3
JBL Clip 3 hátalari. Batteríið getur endst í allt að 16 tíma ef ekki er spilað í botni |
Nú fer að verða komin pressa að klára að taka sig til fyrir hjólaferðina. Í dag fór ég í útivistarbúð til að skoða eldunargræjur en tímdi ekki að kaupa þær þar. Ég hugsa að ég finni mér bara svoleiðis í Svíþjóð, ég á hvort sem er eftir að kaupa mér gas þegar þangað kemur.
Það er nú ekki margt annað sem ég á eftir að redda. Það stærsta er svefnpoki og dýna. Síðan er bara að æfa sig í að pakka þessu öllu og raða.
En svo fékk ég þá flugu í höfuðið að gott gæti verið að hafa hátalara með í ferðalagið. Þessi JBL sem er á myndinni er með batterí sem endist í allt að 16 klst (ef lágt er stillt, 10 á fullu blasti) og hljómurinn er mjög ásættanlegur. Hann er líka vatnsheldur og síðan er hægt að para hann við annan hátalara og þá er maður kominn með þetta í stereo. Að lokum, það er hægt að smella honum á bakpoka eða láta hann hanga utaná sér.
Þetta verður góð viðbót í útilegugírinn en mig vantaði s.s. líka hátalara til að hlusta á podcast og þætti hérna heimavið þegar ég er að brasa. Þessi er hrikalega þægilegur og auðvelt að drösla honum á milli. Hann kostaði 6990 kr í Heimilistæki og ég ætlaði ekki að tíma að kaupa hann, sérstaklega í ljósi þess að ég fann hann á 4000 kr í USA. En svo þegar ég sá að hann kostar 7000 kall í Svíþjóð, þá ákvað ég að láta vaða. Var að væla yfir þessu í búðinni svo gaurinn seldi mér hann á 6200 kr. Super sáttur!
Ummæli