Druslur

Ég var að kíkja inn á FÍB heimasíðuna til að skoða kostnað við rekstur bifreiðar. Miðað við bíl upp á 2,8 milljónir og 15.000 km akstur á ári er kostnaður 97 þúsund krónur á mánuði þegar tekið er tillit til vaxtakostnaðar og verðrýrnunar. Þetta eru því 1.166.000 krónur á ári.

Ég prófaði að fara yfir þetta og reikna með því að maður keypti druslu á 200 þúsund og sleppti þá vaxtakostnaði og verðrýrnun. Þá er maður í ca. 47-50 þúsund á mánuði ef maður lendir ekki í neinum stóráföllum. Kostnaður á ári gæti því numið 500 til 600 þúsund krónum.

Ég er að bíða eftir niðurstöðum úr greiðslumati hjá lífeyrissjóð og þar reikna ég með að vera áfram bíllaus. Ég er í þeirri stöðu að ég hef ekki efni á því að bæði reka bíl og borga af fasteign. Að sleppa bíldruslunni er í raun eins og að fá ríflega kauphækkun, þó því fylgi aukið flækjustig.

Ég skilaði bílnum í gær sem við vorum með á vetrarleigu. Ég var búinn að kvíða því aðeins en maður er fljótur að skipta um "mindset" og ég fann ekki fyrir þessu fyrsta daginn. Hjólaði rúmlega 8 km. í dag og manni líður að sjálfsögðu vel með það.

Nú er líka ferða/samgönguhjólið mitt komið til landsins og ég er að vona að það verði komið í mínar hendur fyrir helgina. Hlakka til að græja á það ljósin og töskurnar. Þá verður ennþá auðveldara og skemmtilegra að vera bíllaus.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap