Draumar
Ég er búinn að vera að horfa á Sopranos upp á síðkastið og hef haft gaman að. Ævisaga Carl Jung og eitthvað sálfræðigrúsk gefur þáttunum aukna vídd, því eins og margir muna eflaust eftir, þá hittir Tony reglulega sálgreininn Dr. Melfi sem af veikum mætti reynir að koma honum í tengsl við tilfinningar sínar með von um að hjálpa honum eitthvað. Í þessum tímum koma fram ýmis kunnulega stef, draumráðningar og upprifjun atvika úr barnæsku.
Til hliðar við þetta hef ég haldið áfram að reyna að spóla mig í gegnum ævisögu Jung en það gengur s.s. ekki hratt hjá mér. Þungir kaflar um undirmeðvitundina, frumgerðir, táknmyndir og drauma eru margir illskiljanlegir. Ég er annsi hræddur um að það væri margra ára vinna að ná einhverjum botni í það sem maðurinn var að fara. En maður nær alltaf smám saman tenginum og heildarmyndin skýrist eitthvað.
Eitt af því sem ég hef tekið eftir er að þegar ég hef verið að lesa kafla um drauma sem urðu mjög þýðingamiklir fyrir Jung, þá hefur það gjörbreytt hjá mér draumunum og stundum þegar ég vakna veit ég ekki hver djöfullinn hefur verið að gerast. Stundum finnst mér jafnvel eins og það hafi opnast leið ofan í undirmeðvitundina og fram séu að spretta einhverjar táknmyndir sem ég hef engan skilning á.
Í nótt dreymdi mig samfleytt allskyns vitleysu og ég er búinn að gleyma því að mestu. Ég man þó eftir að ég var á gangi í skógi, finnst eiginlega eins og það hafi verið Vaglaskógur. Ég kom í rjóður og það var nokkurskonar hljóðfærakirkjugarður. Svört gömul píanó stóðu þar út um allt. Mér finnst eins og það hafi verið bústaður þarna rétt hjá og einhvernveginn tengdist hann mér og Guðrúnu. Guðrún var allavega í bakgrunni draumsins en ég sá hana ekki.
Á einu píanóinu sem sem snéri skáhallt frá mér (í jaðri rjóðursins) sat hrafn á nótnaborðinu. Ég horfði á hann í smá stund en svo stóð ég allt í einu fyrir framan hann. Þá hafði hann umbreyst í einhverskonar veru sem var mjög hávaxin með svartan hatt eins og fuglahræða. Þetta var einhverskonar forynja sem var allt í senn fuglahræða, hrafn og einhver skepna. Ég man ekki hvað hann sagði en mér finnst að Brynleifur hafi eitthvað komið við sögu í samtalinu. Síðan vaknaði ég.
Ég hef engan skilning á því hvort eða hvað þessi draumur gæti táknað eða hvaða frumgerð/erkitýpa þetta var eiginlega sem heimsótti mig. Fyrir hvað stendur hún? Eftir að hafa upplifað alla þessa drauma upp á síðkastið er ég allavega farinn að trúa því að draumar eru ekki bara eitthvað samhengislaust bull. Nú þarf maður bara að fara að skrifa þá niður og reyna að sjá eitthvað munstur út úr þessu.

Ummæli