Bikemap appið
Fyrsti leggurinn í hjólaferðinni. |
Þolli benti mér á Bikemap appið og ég endaði með að downloada því í símann og kaupa áskrift. Með þessu appi get ég skipulagt leiðirnar í tölvunni og vistað þær inn. Þær birtast svo bara tilbúnar í símanum og ég á að geta notað þetta þó ég sé offline. Gallinn við þetta er náttúrulega sá að nú fer maður að verða háðari því að komast reglulega í rafmagn. En hleðslubankinn minn á að koma mér langt. Verst hvað hann er lengi að hlaðast sjálfur.
Quad Lock símafesting. |
Til að fitta símann á hjólið pantaði ég mér svo Quad Lock system frá einhverju fyrirtæki í Reykjavík. En því miður var ekki festingin sem mig langaði í til og það verður smá challenge að koma þessu á hjólið þar sem ég var búinn að festa litlu hjólatölvuna á "stamman". Festingin sem fylgir er eins og sú sem er á myndinni- en þar er litla hjólatölvan fest nú þegar. Ég finn eitthvað út úr þessu.
Ég henti inn fyrsta leggnum í appið (sjá myndin) og er að spá í að reyna að komast til Helsingborg á fyrsta degi. Það verður reyndar smá challenge því ég veit ekki hvenær ég get lagt af stað fyrsta daginn og þetta eru rétt ríflega 90 km. Fyrsta daginn í Lundi á ég eftir að fara í bæinn og kaupa gas, eldunardót, svefnpoka, dýnu og jafnvel einhver regnföt. Ég ætlaði að láta gama Fjallraäven jakkann minn nægja en var að lesa einhverja hjólagrein sem sagði að það væri algert must að vera með góð regnföt í hjólaferðum í Skandinavíu. Ég get alveg trúað að það sé nokkuð til í því.
Ummæli