Allt að gerast
Trek 520 - 2019 módel með Brooks Roller töskum. Já og svo setti ég Brooks Cambium C17 hnakk. |
Jæja þá kom blessað hjólið loksins. Fór á pósthús í gær og náði í gripinn og þurfti ekki að borga krónu í sendingarkostnað. Hef heldur ekkert heyrt frá Erninum varðandi greiðslu fyrir hjólið. Þeir ætla kannski bara að gefa mér það?
Tók smá testrúnt á því í gær og finnst gott að krúsa á því. Létt fjallahjól væri sennilega þægilegra innanbæjar en maður fær ekki allt í einu hjóli. Held að þetta hafi verið sniðug kaup og ég er mjög sáttur. Þegar maður var komin á smá siglingu á medium efforti í gær hafði maður á tilfinningunni að maður ætti eftir að geta tekið langar dagleiðir án þess að drepast í skrokknum.
Annars skellti ég mér með Kristni einn götuhjólatúr í gær. Fórum frábæra leið; út úr bænum og á móti vindinum að Svalbarðseyri. Síðan á fullu með vindinn í bakið og tókum skemmtilega leið í gegnum Vaðlaheiðarbyggðina. Þetta er mjög skemmtileg leið og ég á eftir að fara hana miklu oftar.
Ég ákvað að nefna nýja hjólið Rauðka, því mér fannst viðeigandi að gæta jafnréttis og skíra ekki alltaf karlmannsnöfnum. Svo heitir Focusinn minn náttúrulega Gráni, þannig að það er komið eitthvað hestaþema í gang hjá mér. En ég fór að rifja upp nöfnin á hjólunum mínum og þau eru eftirfarandi:
- Aðalsteinn (Specialized Crux - cyclocross hjól) Skírður eftir stórum steini í Steinhólalandi (sem ég skírði Aðalstein).
- Þórólfur (Specialized Camber - FSP fjallahjól). Skírður í höfuðið á Þórólfi kaupfélagsstjóra "kemst allt, svífst einskis og drepur alla af sér".
- Gráni (Focus Izalco Race 2018) Hann er bara eitthvað svo grár.
- Rauðka (Trek 520 - Ferðahjól) Ekki mjög frumlegt en skref í átt að jafnrétti
Góðar stundir
Ummæli