Sól í sinni

Á einhvern óskiljanlegan hátt er en ein vikan þotin hjá. Ég var búinn að ætla að nýta barnlausa tímann í að fara í gegnum eitthvað drasl, henda og sortera. Jafnvel að þrífa svifryk og drullu utan af húsinu. En það varð nú s.s. ekki mikið úr því. En ég tók samt snúning á moppunni í gær, gekk frá og þreif klósettin. Annars bara hafði ég það gott, át góðan mat og slakaði á.

Ég tek börnin aftur á sunnudagskvöldið en fer svo suður á miðvikudagsmorgun í næstu viku til að sitja námskeið sem heitir Samræður í umhverfis- og auðlindamálum. Ég er með opinn miða til baka og aldrei að vita nema maður dvelji fram á helgina. Ég tek svo börnin aftur á Skírdag og þau verða hjá mér í 11 daga straight!

Ég er búinn að senda 2 tölvupósta á Örninn í vikunni til að reyna að draga upp úr þeim hvort einhver von sé til að maður geti nálgast hjólið í næstu viku, en það gengur ekkert að ná af þeim. Ég er að verða vægast sagt þreyttur á þessu og hugsa að þetta hjól verði fyrstu og síðustu viðskipti sem ég á við Örninn. Ef ég fæ hjólið afhent í næstu viku er aldrei að vita nema ég nýti 2-3 daga í Reykjavík að hjóla um ef veðrið verður þokkalegt.

Að lokum, það má ekki gleyma því að vera þakklátur fyrir veðrið í gær og í dag. Eins og segir í ljóði sem einhver orti;

Sól úti, sól inni
Sól í hjarta, sól í sinni

Sól í sálu minni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap