Skíði, pylsur, beikon og finnskur krimmi
Ville Virtanen leikur rannsóknarlögreglumanninn Kari Sorjonen. |
Ég og Þórður skelltum okkur á skíði upp í Hlíðarfjalli í gær, sem var fínt, en við frændur gerðum þó ein stór mistkök; við klæddum okkur ekki nægilega vel. Það er alltaf eins og maður sé að gera þetta í fyrsta skipti. Maður hefði alveg getað sagt sér það áður en maður fór af stað, að næðingur og nokkura stiga frost er einmitt ágætt uppskrift af því að pungfrjósa í stólnum. Maður situr stóran hluta af tímanum kyrr og það er skárra að vera of heitt en of kalt. Ég var meira að segja með hálfbera kálfana þar sem ég náði ekki buxunum yfir klossana- þvílíkur amateur. Næst verð ég í dúnúlpunni. En færið var fínt, gaman að renna og við skemmtum okkur ágætlega.
Eftir þetta skelltum við okkur heim, steiktum pylsur, beikon og sveppi og horfðum á United tapa fyrir Úlfunum, sem er alltaf gott. Eftir það kíkti ég svo á einn þátt af Boardertown, sem eru finnskir sakamálaþættir á Netflix. Þetta eru mjög efnilegir þættir, vel leiknir, flott myndataka og skemmtilegir karakterar. Hver elskar ekki Finna?
Í bókletrinum þokast hægt áfram í sálfræðibókinni og Simone de Beauvoir liggur óhreifð á náttborðinu um langt skeið. Ég ætla mér að klára hana þó ég hálfpartinn nenni því ekki. Síðan var ég reyndar að gramsa í geymslunni og fann bókina Íslenska þjóðríkið eftir Guðmund Hálfdánarson sem Davíð lánaði mér. Ég var aldrei búinn með hana en man að mér fannst hún stórmerkileg. Ég ætla að byrja á henni upp á nýtt fljótlega.
Ummæli