Páskafrí
Þá erum við börnin komin heim eftir frábæra daga hjá afa og ömmu í sveitinni. Brölluðum ýmisslegt skemmtilegt. Svona utan við að borða endalaust fórum við í sund á Laugum, ég fór með systrum mínum í ræktina, fórum í ævintýraferð út að fjalli og Brynleifur fékk aðeins að hitta Heimi. Að sjálfsögðu fórum við líka nokkrum sinnum í fjárhúsin og að ná í egg í hænsnakofann. Já það má ekki gleyma því að það komu líka lömb!!
Nú erum við komin heim aftur og ég er að fara að skella mér í crossfit. Á meðan ætla ég að leyfa börnunum að hitta mömmu sína þar sem hún á ekki eftir að vera með þau fyrr en eftir heila viku.
Ég er búinn að liggja í hjólapælingum um páskana og bíð en eftir svari frá Erninum um hvort þeir eigi ódýran racer fyrir mig. Mér sýnist að þeir þurfi reyndar að gera mér mjög gott tilboð því Ofsi hjól eru að selja Orbea Avant H30 sem er nokkuð vel "spekkað" hjól á sama verði og í flestum Evrópulöndum. Samkvæmt heimasíðunni hjá Hjólaspretti er líka til þýskur Focus racer með carbon stelli sem búið er að slá af 100 þúsund kall. Það hjól gæti ég átt í mörg ár í viðbót og upgradað í einhverja geðveika skepnu.
Í öllu falli stefni ég að því að vera kominn hjá hjól fyrir næstu helgi. Get ekki beðið eftir að skella mér Eyjafjðararhringinn og fara með hjólahópnum.

Ummæli