Múrvinnu lokið og Gráni viðraður í fyrsta skipti

Fór að Kristnesafleggjara og til baka í fyrsta túrnum.

Náði að klára múrvinnuna að mestu í gær. Átti einn poka af grófri múrblöndu og hún kláraðist alveg upp á gram. Það hefði verið gott að eiga smá í viðbót en ég reyni að redda mér á trefjamúrblöndu sem ég á smá slatta af. Það á bara eftir að loka 2 litlum skemmdum í gólfinu við útidyrahurðina niðri. Þórður kom og kíkti við og hjálpaði mér við þetta og þannig skítgekk þetta.

Við kíktum síðan í mat í Duggufjöru og eftir það náði ég loksins að taka hring á nýja hjólinu. Ég hjólaði 20 km og hjólið er geggjað. Maður var aðeins farinn að finna í skrokknum þegar maður kom til baka en það er bara eðlilegt held ég þar sem ég hef ekki hjólað á racer síðan í september í fyrra. Er að spá í að skella mér einn hring með Götuhjólahóp HFA núna kl. 09.00.

Hér fyrir neðan er mynd af steypta pallinum sem við Þórður löguðum í gær. Í dag ætla ég að reyna að fínisera múrinn á eftir og fúaverja vegginn hér að framan ef ekki rignir.

Nú er bara málningarvinna eftir eiginlega.

Lítur betur út

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Góðan daginn öll

Kylfingur spjall

Negri í Þistilfirði