Meiri skíði
Kominn í Strýtuna |
Veðrið hefur leikið við okkur norðankúkana upp á síðkastið. Ég og Þórður ákváðum því í gær að nýta tækifærið og renna okkur á tunnustöfum. Þetta var Geðveikur dagur með stóru G-i. Færið var frábært, sólin bakaði okkur og það var engin bið í lyfturnar. Eftir þetta fórum við heim og hentum lambabógi í ofninn og skottuðumst svo í sund á meðan hann var að eldast. What a day!
Börnin eru komin til mín og verða fram á þriðjudagskvöld en þá er ég að fara suður til Reykjavíkur. Vinn þar fram að helgi en er með opinn miða heim svo ég veit ekki alveg hvað teygist úr þessu hjá mér. Veit ekki hvort ég á eftir að hafa eirð í mér til að lufsast einn í Rvk.
Var að fá fréttir frá Erninum að hjólið mitt hefði ekki komið með gámnum sem var að lenda. Ég er að verða vægast sagt þreyttur á þessari þjónustu en ætla að gefa þeim smá séns í viðbót áður en ég fer að panta mér einhverja aðra tegund af hjóli. Ef hjólið hefði verið komið hefði ég örugglega tekið mér smá hjólafrí í Reykjavík en það verður að bíða betri tíma.
Ummæli