Meiri framkvæmdir

Fannst þessi mynd svo skemmtileg af litla fuglafræðingnum mínum. Hann hefur mikinn áhuga á hröfnum. Finnst þeir miklu meira spennandi en fálkar.

Eftir vinnu í dag eldaði ég folaldagúllas og bauð Þórði í mat. Brynleifur fór að gista hjá vini sínum og Dagbjört var því prinsessan í kofanum. Hún át mikið kjöt með fullt af rabarbarasultu og fékk svo saltstangir, kókómjólk og horfði á Youtube. Hún horfir endalaust á einhver myndbönd með litlum bleikklæddum stelpum leika með dúkkur og mála sig. Ég hef smá áhyggjur af þessu en hef ekki haft brjóst í mér til að stoppa þetta þar sem henni finnst þetta svo rosalega spennandi.

Eftir að ég kom henni í háttinn fór ég út og hreinsaði allt rusl af neðri pallinum og háþrýstiþvoði alla veggi og gólf til að undirbúa fyrir múrverk og málningu. Guðrún tekur börnin kl. 15.00 á morgun og ætli ég verði ekki að byrja að múra þá þó mig langi hrikalega til að prófa hjólið.

Var í sambandi við Þolla í gær varðandi hjólaferðina okkar. Við erum svona farnir að spá í hvaða kortabúnað við verðum með. Ég er farinn að hallast að því að vera bara með litla hjólatölvu til að mæla vegalengd og hraða og nota svo bara gamaldags kort. Ef ég nota Strava eða Google maps verður meira vesen með batterí. Það er gaman að spá í þessu og mikil skipulagning framundan.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap