Mataræði og endurmenntun
Ég hef oft ætlað að taka "fyrir og eftir" myndir af mér þegar ég hef lagt af stað í eitthvað átak en aldrei látið verða af því, fyrr en nú. Annan febrúar ætlaði ég að byrja í hörðu ketó en hef ekki alveg náð að halda mér við það. Ég hef samt að mestu borðað hollt og þegar mig hefur borið út af leið hefur það samt aldrei orðið til þess að ég leggi alveg árar í bát. Og nammi hef ég eiginlega ekki snert. Svindlið hefur frekar tengst kökum í vinnunni og kótilettum í raspi.
Nú er ég að koma úr 3 daga vinnuferð í Reykjavík og þar missti ég mig í allskonar vitleysu en þrátt fyrir það reyndi ég alltaf að hafa það í huga að fá mér líka alltaf vel af grænmeti og próteini með. Í morgunmatnum (sem ég er vanur að sleppa heima) á Grand Hótel byrjaði ég líka alltaf á stútfullum diski af korni, fræum, múslí, hreinni súrmjólk og ávöxtum, en leyfði mér svo að fá mér vöfflu á eftir. Og í staðinn fyrir að hreyfa mig ekki neitt þá skellti ég mér í ræktina á hótelinu. Um leið og ég kom svo til Akureyrar skellti ég mér í ræktina. Vikan sem hefði getað endað bara með sukki og rugli varð því ekki svo slæmt eftir allt. Ég náði 4 æfingum.
Ég er að komast betur og betur að því að þetta er langhlaup. Það hefur svo oft verið hamrað á þessu en maður hefur aldrei viljað alveg gúddera þetta, bara viljað fá árangur...... og það strax. Ég er að verða nokkuð ánægður með árangurinn enda hef ég verið duglegur að hreyfa mig í heilt ár samfleytt núna. Tók smá crossfit í fyrra vor, hjólaði og skokkaði síðasta sumar og svo byrjaði ég aftur í crossfittinu í haust. Margra ára sveiflur með allskyns öfgum í allar áttir eru vonandi að jafnast aðeins út. Samband mitt við mat er reyndar alls ekki orðið heilbrigt, en ég er að vinna í því. Ég er náttúrulega fíkill í eðli mínu.
Planið fyrir framhaldið er því einfalt; bara halda áfram í sama farinu. Lyfta og hjóla til skiptis og ekki gefast upp. Gera það sem mér finnst gaman, ekki yfirkeyra mig og borða eins hollt og kostur er án þess þó að fara að útiloka nammi, hammara, pizzur og ís. Ég elska sukk út af lífinu og vil ekki lifa án þess.
Annars var ég að koma af námskeiði um samkipti og átakastjórnun í umhverfismálum og það var mjög fróðlegt. Á síðustu árum hefur áhugasvið mitt verið að færast mikið til yfir á félagsvísindi og mannlegri þætti. Þetta efni fellur klárlega undir það. Síðan er ég farinn að spá í að bæta við mig öðru námi sem ég get ekki alveg talað um hér og nú en ég er kominn með persónulegan ráðgjafa til að hjálpa mér að plotta upp gott plan. Það nám mun nýtast mér í þeirri vinnu sem ég er í í dag en einnig opna fleiri möguleika í framtíðinni í tengslum við ráðgjöf og leiðbeiningu.
Að lokum verð ég að taka það fram að myndin hér að ofan er pínu svindl. Seinni myndina tók ég þegar ég var nýkominn úr ræktinni og birtan er aðeins öðruvísi. En ég hef samt verið að ná árangri og langar til að setja hana þarna inn til að minna mig á að gefast ekki upp. Eftir aðra 3 mánuði verður kominn en meiri munur ef ég held áfram á sömu braut!!
Ummæli