Hjólaferð með Brynleifi.


Var heima með Brynleif veikan í dag. Hann var nú mest bara símanum en svo ákváðum við að nota tækifærið og skipuleggja hjólaferðina okkar í sumar. Hann mældi á korti og við ákváðum afþreyingu og matseðil í sameiningu. Það er mjög mikilvægt fyrir hann að við gistum aldrei á skipulögðum tjaldsvæðum. Svona lítur planið út núna:

Dagur 1

12.00 Brottför

14.00 komnir í Kjarnaskóg (6,4 km)
Leika
Slappa af 
Borða nesti (Djús, kex, banana (hálfgrænan), hnetur)).

16.00 Leggja af stað í Kristnes
18.00 Komum í Kristnes 6,7 km (total 13,1 km).
20.00 Kvöldmatur (Pylsur djús, sykurpúðar í eftirrétt með Nutella)
22.00 Fara að sofa


Dagur 2

07.00 Vakna
08.00 Morgunmatur (Heitt kakó, brauð með hnetusmjöri, sultu og banönum)
10.00 Leggja af stað.
11.00 Hrafnagil í sund (3,0 km)
12.30 Hádegismat eftir sund (snarl)
14.30 Holtsel (7,2 km)  Borða ís
15.30 brottför
16.00 Grund (2,4 km)
16.30 Brottför
18.00 Melgerðismelar (5,3 km) + 17,7 km. Total  báða dagana 30,8 km
19.00 Kvöldmatur (Súpa og brauð)

Dagur 3

07.00 Vakna
08,00 Morgunmatur (heitt kakó, brauð með hnetusmjöri, sultu og banönum)
09.00 Brottför
10.00 Smámunasafnið 3,9 km
11.00 Brottför 
13.30 Leyningshólar 15,9 km. 
    Hádeigismatur (Ommeletta, harðfiskur og djús)
15.00 Brottför.
16.00 Úlfá (4,3 km) 24,1 Total 55 km
17.00 Tjalda
19.00 Baða í Hólsgerðislaug
21.00 Kvöldmatur (í vinnslu)

Daginn eftir læt ég ná í Brynleif og hjóla sjálfur til baka. Þetta verða 55 km og ég hef fulla trú á að hann muni alveg meika þetta. Þetta verður sko eitthvað!

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap