Focus Izalco Race 105


Jæja ég hætti að nenna að velta mér upp úr þessum hjólamálum og kýldi bara á þetta í dag. Nú er ég 200 kallinum fátækari en með fullt af góðum réttlætingum á takteinunum, ekki að ég þurfi neitt á þeim að halda.

Í morgun hringdi ég í Hjólasprett í Hafnafirði og fékk vinalegt viðmót og góða þjónustu. Það gerði útslagið og það endaði með því að ég fékk mér þennan þýskan fák; Focus Izalco Race með carbon stelli. Hjólið er 2018 módel og ég fékk það á rúmlega 82 þúsund króna afslætti.

Það sem varð til þess að ég valdi þetta hjól á endanum var að það fær mjög góða einkunn fyrir stellið og með einhverjum uppfærslum er maður kominn á algeran killer racer. Ég ætti því að geta notað þetta næstu árin í sátt og samlyndi við guð og menn.

Hér er videoreview á Izalco Race Sora sem er týpan fyrir neðan mitt hjól. Sama stell en lélegri aukabúnaður.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap