Afmæli Dagbjartar Lóu

Dagbjört Lóa orðin 4 ára.

Í dag eru 4 ár síðan þessi skotta kom í heiminn. Ég man að sjálfsögðu daginn mjög vel enda aðdragandinn nokkuð krassandi. Fylgjan var mjög lágsæt og því varð að taka hana með keisara fyrir tímann. Ef Guðrún hefði farið af stað hefði verið hætta fyrir hendi og því dvöldum við á Akureyri vikuna fyrir aðgerðina. Eftir einhverjar smá blæðingar var svo aðgerðinni flýtt en meira- en allt gekk þó vel að lokum. Ég verð nú að viðurkenna að fyrir föður er mun rólegra að fylgjast með keisaraskurði en slíkt inngrip er ekkert grín fyrir mömmuna fyrstu dagana á eftir. Þá kemur nútíma pabbinn sterkur inn í bleyuskiptin og allt það. Ég var mikið með henni fyrstu vikuna og fannst það mjög dýrmætt.

Í morgun labbaði ég niður í Aðalstræti til að færa henni pakka. Ég keypti bleika Nike skó og þeir vöktu að sjálfsögðu mikla lukku. Guðrún steikti lummur og við fengum okkur morgunkaffi. Svo var veisla í kvöld þar sem vinir og fjölskylda komu saman og átu pizzu og köku. Yndislegur dagur.

Ég er eiginlega búinn að ákveða að fá mér racer svo ég geti farið að hjóla. Í aðra röndina finnst mér hálfgert brjálæði að vera að kaupa mér 2 hjól á stuttum tíma en þetta eru nú ekki mjög dýr hjól sem ég er að skoða. Ég lít bara þannig á það að þetta er eitthvað sem mig langar til að gera og finn mig í- stunda hjólreiðar í góðum hópi til að halda mér í formi og ekki er ég að eyða peningum í rekstur á bíl.

Eftir að hafa reiknað dæmið til enda með Canyon hjólið er ég farinn að skoða 2 aðra kosti. Annar er að panta Scott Speedster frá MHW bike þar sem þeir rukka ekki fyrir sendinguna og svo sendi ég tölvupóst á Örninn og spurði hvort þeir geti gefið mér góðan díl þar sem hinu hjólinu seinkaði. Sjáum hvað setur.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap