|
Séð úr vinnunni og upp í fjall
|
Ég var nú búinn að sjá fyrir mér að fara eitthvað á skíði í vetur en ekkert hefur orðið úr því. Ég keypti mér reyndar ekki kort í fjallið, en maður gæti nú alveg skroppið í 2 klukkutíma til að ná úr sér mesta hrollinum (og eflaust slasa sig). Maður horfir stundum þarna uppeftir þegar maður er í vinnunni og veltir því fyrir sér hvað það væri næs að vera á skíðum. Aldrei að vita nema ég reyni að plata Þórð eftir vinnu einhvern daginn.
Annars er allt svipað. Ég er að malla léttsaltaðan þorsk og lauksmjör í augnablikinu og Brynleifur er að læra. Í kvöld ætla ég að bregða mér á fyrirlestur og svo að horfa á síðasta þáttinn af True Detective.
Ummæli