Rólegheit í húsnæðismálum

Jól í Dalsgerðinu. Tréið til hægri er eik sem var gróðursett 1986.

Í síðustu viku hélt ég að það væri eitthvað að fara að gerast í húsnæðismálum hjá okkur. Fengum nokkrar skoðanir á stuttum tíma en engin gerði tilboð. Ég hef ekki neitt farið inn á fasteignir.is upp á síðkastið, þannig ég veit s.s. ekkert hvað er að frétta af þessum markaði. Kannski er bara óvenju mikið framboð. En mig grunar líka að fólk sé orðið eitthvað nervous vegna yfirvofandi verkfalla og vegna horfa í efnahagsmálum almennt.

Það getur vel verið að fólk setji líka fyrir sig að ekki sé búið að gera nægilega mikið fyrir eignina. Fólk gerir orðið svo miklar kröfur um innréttingar og allan fjandann. En mér leið alltaf vel hérna og staðsetningin er frábær. Eins og ég hef margoft sagt hérna á blogginu þá höfum við verið bíllaus síðan sumarið 2017. Við erum með allt við hendina; háskólann, Nettó, apótek, bakarí, pizzastað og sundlaug svo eitthvað sé nefnt. Svo eru bara 300 metrar í skóla og leikskóla og KA svæðið hinumegin við götuna. Það hlýtur að vera að einhver sem sér kostina við þetta.

Þá smá dagbók um mat og æfingar: Tók bolludaginn hátíðlegan með miklu áti í gær og svo úðaði ég í mig saltkjöti og baunum í dag. Úr því ég var byrjaður át ég steiktan fisk í raspi með kartöflum og remúlaði í kvöldmatinn. Til að vinna gegn matarsóun ætla ég svo að éta restina af honum í hádeginu á morgun. Þá er líka komið gott af svindli og ég ætla að einhenda mér aftur í ketóið og klára út mars. Þá er ég að hugsa um að prufa einn mánuð á grænmetisfæði (já þið lásuð rétt). Ég nenni ekki að fara all in vegan en langar að prufa að sleppa allavega kjöti og fisk en halda eggjum og mjólkurvörum inni. Éta svo nóg af baunum, byggi og svoleiðis gúmmelaði.

Fór á mjög erfiðar crossfit æfingar í gær og í dag og ætla að hvíla á morgun. Formið er fínt þrátt fyrir að ég sé búinn að vera kvefaður og slappur. Ætla að hvíla á morgun og taka svo fimmtudag, föstudag og laugardag á frekar rólegu tempói.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap