Jung

Jungíska líkanið af mannshuganum

Í fyrrakvöld fór ég á mjög skemmtilegan fyrirlestur sem bar yfirskriftina "Sálubót"- um djúpsálfræði Carl Jung. Fyrirlesari var Helgi Garðarsson geðlæknir sem ég þekki lítillega. Þetta var fínn inngangur að verkum Jung og fór Helgi m.a. yfir módelið hans fræga af mannshuganum (sjá mynd). Það kom mér reyndar á óvart hvað ég var farinn að þekkja þetta efni vel og það var s.s. ekki margt sem var mér framandi. En það var gaman að heyra Helga setja þessi fræði í samhengi við dæmi úr raunveruleikanum, t.d. klínísk dæmi úr hans starfi.

Það sem er svo spennandi við Jung er að margt af því sem hann gerði er eiginlega á mörkum þess að vera yfirskilvitlegt. Enda var hann jaðarsettur og ekki alltaf litið á fræði hans sem vísindi. En hann var ótrúlega vel lesinn í heimspeki, mannkynssögu, forbókmenntum og líffræði. Blandið þessu saman við ótrúlegar gáfur, listræna hæfileika og eiginleika til að ná heildarsamhengi hlutanna, þá er útkoman bæði á dýptina og breiddina. Kenningar hans eru svo bara eins og falleg málverk af starfsemi hugans og lýsa honum oft helvíti vel. Hér er smá myndband af Jordan Peterson að tala um gáfur Carl Jung.

Annars er bara allt fínt að frétta. Búinn að standa mig ágætlega í mataræðinu í vikunni og ætla að gera mér keto pizzu í kvöld Búinn að taka 4 crossfit æfingar og er að spá í að kíkja í fyrramálið- en þá verð ég líka að hvíla á sunnudaginn. Ég hef verið að dansa á línunni með álagið á öxlunum og er aðeins farinn að finna til aftur. Samt er ég nokkuð duglegur að taka dauðar upphífingar til að styrkja bakið. En ég verð kannski að fara að taka fleiri æfingar sem rétta betur úr mér til að laga afstöðuna á öxlunum. Jæja nóg blaður í bili.......

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap