Hunter S. Thompson

Hunter S. Thompson

Hunter S. Thompson er sennilega frægastur fyrir að hafa samið bókina Fear and Loathing in Las Vegas og fyrir að vera upphafsmaður svokallaðrar Gonzo blaðamennsku; "þar sem per­sónu­leg upp­lif­un blaðamanns er í for­grunni og frá­sögn­in, sem er í fyrstu per­sónu, dreg­ur ríku­leg­an dám af þeim sem rit­ar, hugs­un­um hans og áliti, um leið og hann tek­ur þátt í kring­um­stæðunum." eins og segir í grein einni í Mogganum árið 2017.

Ég hef ekki kynnt mér verk Hunter's neitt að ráði, en hef þó séð um hann heimildarmynd og svo að sjálfsögðu horft á hina frábæru Fear and Loathing in Las Vegas, sem gerð er eftir fyrrnefndri skáldsögu. Þar fer Johnny Depp á kostum sem Hunter sjálfur og fjallar myndin um ferð sem hann fór til að skrifa um mótorhjólakeppnina Mint400. Með í för er vinur hans og lögfræðingurinn snargeggjaði Dr. Gonzo og eru þeir félagar algerlega stjórnlausir af dópneyslu alla myndina. Hunter var nefnilega dálítið mikill dópisti mest allt sitt líf.

Það er ákveðinn ævintýraljómi yfir Hunter S. Thompson vegna þessarar gengdarlausu áfengis- og dópneyslu sem hann var þekktur fyrir. En maður þarf svo sem ekki að kafa langt undir yfirborðið til að sjá að þetta hefur ekki komið til af góðu og sjálfsagt hefur honum oft liðið bölvanlega. Það fór líka svo að lokum að hann stimplaði sig sjálfur út, 67 ára gamall. Þar endanlega fór dýrðarljóminn af þessu.

En hvernig var þá dæmigerður dagur í lífi Hunter S. Thompson? Eftirfarandi lýsing er úr bókinni The Strange and Savage Life of Hunter S. Thompson:

15.00 - Vakna
15.05 - Chivas Regal með morgunblaðinu og Dunhill sígarettur
15.45 - Kókaín
15.50 - Annað glas af Chivas og Dunhill
16.05 - Fyrsti kaffibollinn og Dunhill
16.15 - Kókaín
16.16 - Djús og Dunhill
16.30 - Kókaín
16.54 - Kókaín
17.05 - Kókaín
17.11 - Kaffi Dunhill
17.30 - Meiri klaka í Chivas-ið
17.45 - Kókaín
18.00 - Gras til að róa þetta aðeins niður
19.05 - Borðað á Woody Creek Tavern:

Heineken bjór og tvær margarítur (drykkurinn), tveir ostborgarar, tveir skammtar af frönskum, hrásalat, diskur af tómötum, taco salad, tveir skammtar af djúpsteiktum laukhringjum, gulrótakaka, ís, bean fritter, Dunhill sígarettur, annar Heineken, meira kókaín og til að hafa leiðinni heim; ískrap með fjórföldum Chivas.

21.00 - Kókaín
22.00 - Sýra
23.00 - Chartreuse (áfengi), kókaín og gras
23.30 - Kókaín
00.00 - Hunter er tilbúinn að fara að vinna
00.05 - 06.00 - Chartreuse, kókaín, kaffi, Chivas, Heineken, negulsígarettur, grape ávöxtur, Dunhill, appelsínusafi, gin,
06.05 - Farið í heita pottinn og étið fettuccine alfredo pasta, ís og kampavín
08.00 - Halcoin róandi svefnlyf
08.05 - Sofa

Hljómar eins og fínn dagur, er það ekki?

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap