Hækka flugið

Í crossfit er gjarnan skrifað upp á töflu hvernig fólk stendur sig í "WOD-i" dagsins (Workout Of the Day). Ég skrifa nú yfirleitt ekki á þessa töflu en það getur samt verið ágætt til að sjá hvar maður stendur miðað þá bestu. Æfingin í gær sýndi mér að mikil ástundun og mataræði síðustu mánaða er að skila einhverjum árangri. Maður getur alveg skorað ágætlega, allavega þegar æfingar snúast meira um þol á kostnað styrks. Æfing gærdagsins var: Armbeygjur á handlóðum, Framstigsganga með 22,5 kg í front rack og Ground to overhead með 20 kg plötu; Endurtekningar 4,8,12,16,20 - 10 mínútna time cap. Ég náði að klára 20 + 6 reps og sýndist að einhverjir 3 gaurar hafi náð betra skori í gær.

Eftir æfinguna rölti ég á klippistofuna Medúllu þar sem Guðrún hafði pantað í klippingu fyrir gríslingana. Við skutluðum svo Guðrúnu í Aðalstrætið og ég fór því næst með börnin í Bónus og svo náðum við í mat á Zerrano. Eftir þetta fór nú heldur að lyftast á manni brúnin og dagurinn í dag er mun betri en síðustu 2 dagar hafa verið.

Ætla að fara og sækja nýju þvottavélina mína eftir vinnu í dag og finna eitthvað hollt og gott að borða. Annars bara rólegheit, sófahangs og frí í ræktinni.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap