Eplaedik
Ég hef ekki drukkið gos í 3-4 ár. Þetta var eiginlega ekki meðvituð ákvörðun, heldur bara eitthvað sem gerðist. Ég geri reyndar undantekningar í kringum jólin. Þá fæ ég mér jólajöl og malt. Fyrst fannst mér þetta svolítið erfitt, sérstaklega þegar ég var að fá mér pizzu eða hammara, en núna bara sakna ég þess ekki neitt. Mér finnst reyndar orðið fjarstæðukennt að þamba þetta sull- dýrt og hrikalega óhollt.
En nú hef ég dottið inn á eitt sem mér finnst helvíti gott að fá mér ef mig langar í eitthvað, og það er eplaedik í sódavatn. Til að slá á súra bragðið er ágætt að setja smá stevíu út í. Þá er þetta eiginlega orðið eins og gos eða cider. Ferskt og gott.
Nú er ég ekki að gera þetta vegna einhverrar hollustu, en þetta ku víst geta haft nokkuð góð áhrif á heilsuna og líkamann. Hér koma nokkur atriði sem hafa verið vísindalega sönnuð:
- Lækkar blóðsykur
- Getur hjálpað til við þyngdartap
- Lækkar tríglíseríð og kólestról í blóði
- Getur komið í veg fyrir sveppasýkingar
- Getur unnið gegn bakteríusýkingum (t.d.Staphylococcus aureus)
Skál!
Ummæli