Verkalýðsbaráttan


Eins og flestir hefur maður verið að fylgjast með kjaraviðræðum og hugsanlegum verkföllum. Staðan virðist vera grafalvarleg en ég er nú bara þannig gerður að ég hef engar sérstakar áhyggjur af þessu. Þetta leysist allt og við lifum þetta af (svona flest vonandi). Ég verð samt að segja að ég hef fulla samúð með fólki sem er að vinna einhversstaðar á skítakaupi. Það kom mér reyndar mjög í opna skjöldu þegar ég var að sækja um almenn störf í atvinnuleysinu mínu hvað taxtarnir voru svívirðilega lágir. Maður hefði alltaf þurft að vinna kvöld- og helgarvinnu til að ná endum saman.

Og þá komum við kannski að kjarna málsins. Ef hækka á dagvinnutaxta á almennum vinnumarkaði upp í kannski 450 þúsund, þá þýðir það jafnvel að einhver sem vinnur kvöld og helgarvinnu fer að slaga upp í 800 þúsund krónur á mánuði. Þetta mun væntanlega bara þýða skert þjónusta þar sem fyrirtæki hafa ekki efni á að láta fólk vinna jafn mikið. Það er kannski í lagi í sjálfum sér, en þetta skilar sér væntanlega líka í uppsögnum? Eins munu kröfurnar ganga upp allan launastigann. Ætli háskólamenntað fólk hjá ríkinu fari ekki margt að hugsa sér til hreyfings? Afhverju t.d. að bera ábyrgð í tengslum við eftirlit með innflutningi eiturefna eða leyfisveitingar í fiskeldi (bara sem dæmi) og vera undir miklu álagi ef þú gætir fengið svipaða peninga fyrir að vinna í lobbý-i á hóteli eða keyra rútu?

Ég held að lausnin við þessu sé ekki falin í launahækkunum heldur sé hún rammpólitísk og það sé ábyrgð Alþingis að leysa þetta. Þetta er gamla góða klisjan um velferðarsamfélag eða ekki. Ég held það þurfi m.a. að beita skattkerfinu, vaxtalækkunum og umbótum í húsnæðismálum (sem er nú eitthvað að detta í gang). Fleiri hlutir sem myndu skipta miklu máli eru:

  • Íþróttir og tómstundir fyrir alla óháð efnahag
  • Ókeypis skólamáltíðir og námsefni
  • Ókeypis daggæsla eftir skóla
  • 100 % ókeypis heilbrigðisþjónusta og lyf
  • Króna á móti krónu skerðing afnumin
  • Ódýrar almenningssamgöngur sem virka
  • Betri kjör á námslánum (eða veita styrki)
  • Að fólk borgi ekki húsið sitt tvisvar til þrisvar (vextir)
  • Ókeypis tónlistarnám
Hér er ég bara búinn að telja upp nokkur dæmi um eitthvað sem gæti skipt tekjulágar fjölskyldur gríðarlegu máli. Þetta gæti þýtt að margar fjölskyldur gætu lifað mannsæmandi lífi með reisn en samt jafnvel leyft sér að fara til útlanda við og við. Ég get nú bara sjálfur hakað við allavega 5 atriði á þessum lista sem mundu skipta mig miklu máli peningalega þó ég sé ekkert að berjast í bökkum. Ég hélt einhverveginn á tímabili að aðaláherslur Verkó yrðu á félagslegar umbætur en það hefur þá allavega drukknað í þessari krónutöluhækkunarumræðu.

En ef einhver er farinn að hugsa það, þá sleppti ég viljandi að nefna matvælaverð. Nútíma verksmiðjubúskapur og óhollusta hafa gert það að verkum að við höfum engan sans fyrir því hvað þarf til að búa til holl og góð matvæli- eða hvað það kostar. Það er að verða tímabært að þeir sem framleiða raunverulega matvælin fari að fá eitthvað fyrir sinn snúð á kostnað milliliða. Eat locally think globally sagði einhver. Dýrari betri matur og minna af honum- enda erum við flest að verða of feit og líðum engan næringarskort. 

Jæja nóg suð frá mér í bili...

Ps. ég er alveg með leiðir til að fjármagna þetta

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap