Sálfræðingar og aðrir bjargvættar

Það væri lygi að segja að ég hefði mikla þekkingu á kenningum Carl Jung. Ég hef samt klórað í yfirborðið á verkum hans og haft bæði gagn og gaman af.

Síðan ég krassaði í vinnunni og vandræðin í einkalífinu hófust (þetta fylgdist nokkurnveginn að), þá hef ég leitað mér aðstoðar á býsna mörgum stöðum. Ég áttaði mig eiginlega ekki á því hvað þetta eru orðnir margir aðilar sem hafa hjálpað mér fyrr en ég fór að taka þetta saman í kollinum.

Fyrst talaði ég við heimilislækni sem reyndist mér mjög vel. Þá komu 3 eða 4 tímar hjá sálfræðingi. Því næst fór ég á 8 vikna námskeið hjá Sjálfsvirði (hitti svo konuna sem hélt námskeiðið tvisvar eða þrisvar eftir það). Síðan talaði ég við geðlækni tvisvar sem ég kynntist á Dale Carnigie námskeiði (sem var partur af ferlinu). Að lokum má svo nefnað að við Guðrún fórum í paratíma, fyrst hjá sálfræðingi og svo hjá fjölskylduráðgjafa. Mörg skipti á hvorn stað.

Á þessum tíma hef ég farið í gegnum mikla sjálfsskoðun og lesið alveg óhemju magn af allskyns bókum og greinum tengdum sálfræði, núvitund og andlegu heilbrigði almennt. Úr því hef ég svo valið það sem mér finnst líklegast til að hjálpa mér í gegnum þetta. Ég hef eftir fremsta megni reynt að minna mig stöðugt á að ég muni koma út úr þessu sterkari og betri manneskja.

Í dag tók ég viðtal við sálfræðing í gegnum kerfi sem heitir karaconnect.com. Þetta er kona sem hefur reynst mér frábærlega en ég hef ekki hitt hana lengi. Ég þurfti bara að spegla nokkrar hugmyndir og fá staðfestingu á því að ég væri á réttri leið. Við áttum gott spjall og hún sagðist ekki hafa miklar áhyggjur af mér. Ég var fyrst skeptískur á að hitta sálfræðing í gegnum tölvu en mæli eindregið með þessu ef fólk á ekki annara kosta völ.

En nú held ég bara áfram að grúska  í bókum og minna sjálfan mig á það sem ég er búinn að læra síðustu 2 ár. Ég held að það styttist nú í það að ég þurfi ekki á þessari aðstoð að halda en það er alltaf gott að vita að hún er til staðar. Og maður þarf ekkert að skammast sín fyrir að nýta sér hana. Og svo á maður jú fullt af vinum og ættingjum sem eru alltaf tilbúnir að hlusta.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap