Power-dagur
Dagbjört Lóa veik heima á þriðjudaginn. |
Þetta endaði með því að verða einn af þessum power-dögum. Dagbjört Lóa var loksins orðin nógu frísk til að fara á leikskólann (eftir 7 daga heima) og ég kom henni þangað í morgun og Brynleifi í skólann. Eftir vinnu gaf ég börnunum aðeins að éta og svo lærði ég með stráknum. Því næst fór ég með þau í ræktina, sótti svo mat á Salatsjoppuna og Sprettinn og við fórum svo heim að borða. Síðan horfðum við aðeins saman á Fyndnar fjölskyldumyndir áður en ég kom þeim í bólið. Og nú er ég búinn að vera að taka til, þvo þvotta og græja okkur fyrir ferð í sveitina. Við verðum þar um helgina að sjá um rollurnar.
Þegar Brynleifur kom heim úr skólanum sagði hann mér að það væri einhver hakkari (anonymous með grímu) að fara að skemma youtube. En hann kunni ráð við því. Hann og Patrekur ætluðu að gera nýtt youtube til vonar og vara og svo ætluðu þeir að fara til útlanda (með þyrlu) og finna hvar hakkarinn á heima. Þeir ætluðu síðan að brjótast inn hjá honum og ná af honum grímunni og kalla á lögguna. Svo bætti hann við: "En pabbi, við verðum líka að hafa með okkur töng". "Nú", sagði ég. - "Já til að ná af honum grímunni".
Svona yndisleg móment minna mann á barnæskuna. Hversu gaman það gat verið að lifa í einhverjum ævintýraheimi þar sem allt var mögulegt. Það kom upp í hugann þegar ég og Bjarni vinur minn fórum að smíða flugvél niðri í vaskahúsi á Vesturvallagötunni. Við trúðum svo innilega að við ættum eftir að fljúga henni. Við ætluðum að koma henni upp á Skólavörðuholt og fá að fara með hana upp í Hallgrímskirkju til að taka fyrsta flugið. Í dag hugsar maður ekki svona stórt.
Ummæli