Nýtt keto-season að hefjast
Mynd tekin af: https://blog.greenchef.com |
Ég var svo ánægður með árangurinn af keto tilrauninni minni fyrir jólin að ég var búinn að ákveða að prufa þetta aftur. Ég var nokkurnveginn á hreinu keto frá 15. október til 15 nóvember, en eftir það hélt ég mig nú sæmilega á mottunni fram yfir jólin. Eftir jól hef ég svo aðeins verið að missa mig í óhollustuna og ég finn það á líkamanum. En annars var helsti ávinningurinn af þessu fyrir mig að maður var að verða tálgaður og sá sixpakkið, mig langaði aldrei í nammi og mér leið vel í líkamanum. Engir liðverkir og húðin góð.
Planið hjá mér núna er svona:
- Keto frá 3. febrúar til 3 mars.
- Lágkolvetnafæði + allt grænmeti og ávöxtum frá 3. mars til 3. apríl.
- Frá 3. apríl og fram í júlí áfram lágkolvetnafæði með 1x nammidag í viku.
Undantekningarnar á þessu verða:
- Kótilettumáltið 27. febrúar með vinnunni
- Fimmtudagskaffi annan hvern fimmtudag frá 3. mars
Í kvöld ætla ég að taka mynd af mér svo ég geti fylgst með árangrinum og svo vikta mig í fyrrmálið.
Jákvæðni #17 Það sem hefur glatt mig mest í dag er að éta kæstan hákarl. Þvílíkur matur!!
Ummæli