Lyfjakokteill
Læknirinn: Já förum aðeins yfir þetta. Þú ert að taka skjaldkirtilslyf, lyf til að lækka blóðfitu- og kólestról, kvíðastillandi lyf, verkjalyf, blóðþrýstingslyf, vöðvaslakandi, bólgueyðandi og Metformin út af sykursýkinni..... já og þú varst farin að taka lyf út af þvaglekanum (sem kom til vegna yfirþyngdar).
Sjúklingur: Það stemmir
Læknir: Og hvað get ég gert fyrir þig núna?
Sjúklingur: Ég held ég sé komin með gigt.
Læknir: OK frábært ég skrifa upp á lyf fyrir þig. Þá ættirðu að hressast.
Sjúklingur: Ok takk frábært
Fluga á vegg: Hefur sjúklingurinn prufað að breyta mataræðinu og fara út að hreyfa sig?
Sjúklingur: buuhhhhhh þú skilur mig ekki... .... þú ert með fordóma
Læknir: Það er ekki mitt hlutverk að koma í veg fyrir sjúkdóma, heldur lækna þá.
Ummæli