Ketosnakk

Kolvetnasnauðar brauðbollur með rækjusalati og mygluostur

Ég er búinn að vera lasinn um helgina. Kannski er slappur frekar rétta orðið þar sem ég hef nú alveg getað borið mig um kofann og fóðrað mig og börnin. Það er nokkuð öfugsnúið, að þegar maður er slappur/lasinn, þá finnst manni maður eigi skilið að borða bara hvað sem er sér til huggunar. Rökréttara væri að velja eitthvað hollt til að komast í gegnum veikindin og byggja sig upp. Ég ákvað nú að missa mig ekkert og fer því hress með gott samviskubit inn í vikuna.

Át keto pizzu á föstudaginn (fathead pizza) og svo egg, beikon og avocado í gærkvöldi. Síðan fékk ég mér keto magic cookies í gærkvöldi (þar sem ég átti svo bágt) og er búinn að búa til allskonar nammi namm í dag.

Í morgun byrjað ég á að fara í Nettó og kaupa mér eitthvað sænskt brauðmix sem innheldur ekki nema 1 g kolvetni per brauðsneið. Úr því bakaði ég brauðbollur. Svo gerði ég rækjusalat til að éta með þessu. Síðan var til grænkál og ég ákvað að gera grænkálssnakk.

Auðvitað á maður ekki að venja sig á að vera alltaf að maula á einhverju góðgæti, en af tvennu illu líður manni nú betur að troða í sig einhverju í hollari kanntinum. Hér eru nokkrar hugmyndir af nasli sem maður getur leyft sér þegar maður er á keto:


  1. Pikklaðar gúrkur (t.d pólskar)
  2. Harðfiskur með smjöri
  3. Hákarl
  4. Frækex (eggjahvíta sem bindiefni)
  5. Salthnetur (í hófi)
  6. Keto magic cookies
  7. Keto brownies
  8. Kolvetnasnautt brauð, t.d. með rækjusalati
  9. Mygluostar
  10. Svínapura
  11. Feitar þurrpylsur
  12. Kielbasa pylsur steiktar, dýft í sinnep
  13. Avocado
S.s. kóngafæða, góðar stundir.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap