Il neige
Það heldur áfram að snjóa. Eftir frekar rólega byrjun á vetrinum hefur heldur betur bætt í. Svo mjög að mér finnst þetta eiginlega bara orðið fínt! Ég gæti ímyndað mér að þeir sem eru að upplifa sinn fyrsta vetur á Akureyri hugsi með sér "jæja hvað er að frétta".
Í minningunni voru veturnir í Mývatssveitinni eitthvað í líkingu við þetta- eða það segir minnið manni (sem er mjög svikult). Það er skrítið hvernig maður man bara eftir öllu á kafi í snjó en minningar tengdar snjólausri jörð að vetri eru eiginlega bara ekki til.
Við börnin komum til Akureyrar um kaffileytið í dag og höfum tekið því frekar rólega. Brynleifur reiknaði aðeins í Sprota en svo leyfði ég þeim bara að hanga í símanum og horfa eitthvað. Kíkti sjálfur aðeins á Silfrið og hef svo bara verið að ganga frá, þvo þvott og elda.
Nú tekur barnlaus vika við. Hugsa að ég gisti í Dalsgerðinu en verð væntanlega á einhverjum þvælingi og laus við. Ætla að vera duglegur í ræktinni og fara í sund. Já og bókasafnið! Jæja Ófærð að byrja!
Ummæli