Meira um hjólatúra næsta sumar

Akureyri - Vagnbrekka via Vaðlaheiðargöng

Hjólasportið mun breytast hjá mér næsta sumar. Það mætti segja að það verði minna spandex og meiri rólegheit. Ég hef ekki gefið upp á bátinn að eignast góðan racer, en það verður að bíða betri tíma. En ég hlakka líka hrikalega til að túra um í rólegheitunum með nesti og skoða mig um. Maður getur jafnvel tekið með sér skissubókina og sundföt. Ég veit ekki hvort ég verði beint með einhver markmið fyrir sumarið, en ég er búinn að setja niður á blað ákveðnar leiðir sem mig langar að fara. Eitthvað af þessu getur líka verið fín æfing fyrir Svíþjóðarreisuna.
  • Akureyri - Vagnbrekka 71,7 eða 87 km (Víkurskarð)
  • Akureyri - Siglufjörður 77,0 km
  • Akureyri - Bakkasel 51 km 
  • Akureyri - Úlfá 55 km
Í Bakkaselstúrnum er markmiðið að skoða söguslóðir úr bókinni Fátækt fólk eftir Tryggva Emilsson. Í leiðinni myndi ég vilja ganga inn Seldalinn og reyna að finna smalabirgið hans. Eins langar mig upp á Almenningsfjallið og leita að hestabeinum sem þar eiga að vera. Í þessa ferð stefni ég að því að taka með útilegubúnað og gista.

Í ferðina að Úlfá fer ég með Brynleifi og er stefnan að gista 3 nætur. Ég læt svo sækja hann en hjóla væntanlega til baka sjálfur. Varðandi ferðina í Mývatnssveit þarf maður að gera upp við sig hvort maður ætli að stelast til að hjóla göngin eða láta sig hafa það að fara helvítis skarðið. Gott að hafa spennu í þessu!

Annars kominn á dag 3 í keto og allt gengur fínt. Klassíska 1,5 kg af vatni farið og nú er maður að ná betra jafnvægi á blóðsykurinn. Hungrið hefur ekki truflað mig. Át haug af salati með kjúkling í hádeginu, möndlur í millimál til að hafa orku fyrir ræktina og svo er bleikja sous vide í kvöldmatinn hjá Þórði.


Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap