Ferðin klár!
Mynd visitsmaland.se |
Steig stórt í skref í gær og gekk frá flugmiða fyrir hjólaferðina mína í sumar. Nú er ekki aftur snúið! Ég endaði með að halda bara plani (sjá undir Hjólaferð 2019) og pantaði þann 8. júlí til Kaupmannahafnar og svo þann 21. júlí heim frá Stokkhólmi. Ég hef þá einn dag í Lundi hjá pabba til að setja hjólið saman og græja mig af stað. Svo eru það bara blessuð Smálöndin, brunnir kálfar, rasssæri og illa lyktandi föt.
Ég man eftir því í gamla daga hvað maður gat stundum gubbað yfir skítafýlunni af bakpokaferðlöngum sem komu við í Mývatnssveit. Þetta var einhver blanda af hrælykt, mannasaur og hvítlauk. Nú er það spurning hvort maður kemst sjálfur í þennan hóp og verði litinn hornauga þegar maður kemur inn á kaffihús? Nei annars, andskotinn hafi það, maður hlýtur nú að geta passað sig og verið duglegur að henda sér í stöðuvötn eða leita uppi sturtur.
Nú þarf ég að fara að yfirfara listann minn aftur og sjá hvað ég þarf að kaupa mér og hvað ég get fengið í láni. Sé reyndar í fljótu bragði að ég hef gleymt að setja sólaráburð, skissudótið mitt og kúbanska smávindla. Uppfæri það fljótlega.
Ummæli