Farmers strength

Nú er ég búinn með 2 af 4 gjöfum hérna heima í Brekku um helgina. Ég er búinn að vera að reyna að gera það upp við mig hvort ég eigi að láta bústörfin nægja sem líkamsrækt um helgina, eða hvort ég eigi að skella mér líka í ræktina? Þegar maður er ekki í "gjafa-formi" tekur þetta nú furðulega mikið á!!! Mér finnst ég allavega aðeins finna fyrir þessu.

Ég hef verið að reyna að fjölga hjá mér æfingum og taka þær á minna álagi upp á síðkastið. Hlustaði á mjög góðan fyrirlestur um daginn þar sem fjallað var um volume vs. intensity. Sá sem var að tala lagði mikla áherslu að fara oftar, taka minna á því og passa sig á því að yfirkeyra sig aldrei þannig maður þurfi ekki að sleppa æfingu. Ég er því að reyna að hlusta á líkamann.

Í gærkvöldi steikti ég mér bleikju sem ég át með gúrkum og ídýfu. Það var helvíti gott. En síðan át ég fullt af súrkáli og var þrútinn eins og blöðruselur þegar ég vaknaði. Vissuð þið að súrkál er einhver saltríkasta fæða sem finnst á jörðinni? Ég sem hélt að þetta væri svo gott fyrir mann. En jæja þá strika ég það út af listanum.

Það jákvæða við daginn í dag er að ég nýt þess að vera einn hérna heima í Brekku, lesa, borða góðan mat og skrifa. Veðrið fínt og ekkert að kvarta yfir.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap