Annasöm helgi

Brjálað fjör hjá strákunum og Lóa fékk að vera með.

Það er óhætt að segja að helgin hafi verið annasöm og þessvegna liðið frekar hratt. Á föstudaginn héldum við börnin þorrablót og buðum Þórði að vera með okkur. Heimagerð sviðasulta, hangikjöt, rófustappa, slátur, kartöflumús, harðfiskur, flatbrauð og vel kæstur hákarl. Þetta var að sjálfsögðu alger snilld.

Í gær var ég svo búinn að lofa Brynleifi og vinum hans að koma saman heima hjá okkur til þess að baka. Þó það hafi mikið gengið á um tíma, tókst okkur að baka Betty Crocker, sulla á hana kremi og svo skreyttu þeir tertuna með hlaupi og M&M. Þegar ég var búinn að ganga frá eftir þessa sprengju eldaði ég svo purusteik sem heppnaðist ágætlega.
Frá Þorrablóti

Í dag var ég búinn að lofa Dagbjörtu Lóu að fara á sleða en ákvað svo að halda henni bara inni þar sem hún er kvefuð. Við fórum svo í ræktina í morgun og eftir að við komum heim fór ég bara að laga til og þrífa. Síðan eldaði ég lambakjöt í kvöldmatinn og eitthvað keto- blómkálsmeðlæti. Ég er því nokkurnveginn búinn að standa upp á annan endann alla helgina að elda, laga til, þvo þvott, þrífa eða baka. En það er líka bara fínt. Snýst lífið ekki einmitt um eitthvað svona?

Guðrún kemur heim í kvöld og komið að mér að vera viku í burtu. Ég er búinn að vera í einhverri niðursveiflu og pirringi í gær og í dag út af þessu skilnaðardrasli, kannski tengist það bara því að ég er að fara út af heimilinu, hvað veit ég. En ég hugsa að ég verði hérna í bænum allavega fram á miðvikudag þar sem ég er með stóran fund þann dag. Síðan býst ég við að fara bara heim í Mývó og sjái um búið um helgina fyrir mömmu og Egil sem eru að fara í bústað.

Annars var fyrsti dagur í keto hjá mér í dag og hann gekk bara fínt. Það kom reyndar yfir mig eitthvað kolvetna- craving um kaffileitið og mig langaði í köku þó ég væri í rauninni alveg saddur- ótrúlegur þessi fjandans sykur. En ég stóð það af mér og át svo feita máltíð í kvöld og er bara góður. Þetta er ekkert mál ef maður bara ákveður þetta tímabundið og er skipulagður. En jæja þetta er orðið ágætt í bili..... er ekki best að enda þetta á jákvæðum nótum:

Jákvæðni #18 Góð helgi að baki og börnin fóru glöð í bælið

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap