Er keto bara vitleysa?

Keto magic cookie með rjóma

Ég átta mig vel á því að keto er tískubylgja og eftir nokkur ár munum við líklega líta til baka með bros á vör og segja "manstu þegar allir voru að láta húðflúra sig, fóru í sjósund, drukku Nocco og borðuðu keto?". En hvað sem öllum tískufyrirbrigðum líður, þá er keto samt kannski í rauninni bara nálægt því sem við ættum helst að vera að éta; kjöt, fiskur, grænmeti (sem vex ofan jarðar) og hollar fitur. Til lengri tíma litið er samt sennilega ekki vitlaust að bæta inn grófum kolvetnum (sérstaklega ef maður hreyfir sig mikið) og passa upp á trefjarnar. En þeir sem vilja dýfa sér í lífefnafræðina á bakvið þetta geta lesið þetta hér og þetta hér. Einnig vil ég benda fólki á myndina Magic Pill á Netflix.

En ef ég á að hraðsjóða upp eitthvað hér til að segja hvað það er sem fær mig til að fíla það að fara eftir þessu, þá gæti það litið svona út:

  1. Maður þarf ekki að passa sig á fitu (reyna að velja holla samt)
  2. Minni sveiflur í blóðsykri og þar af leiðandi minni sykurþörf
  3. Meltingin er fín
  4. Minni liðverkir
  5. Orkumikill í ræktinni og almennt hress
  6. Gengur vel að skera mig niður og bæta á mig vöðvum.
Samhliða þessu hef ég reyndar nokkurnveginn verið að fylgja 16:8 líka, þ.e. ég borða mínar 2-3 máltíðir milli klukkan 12.00 á hádegi og fram til klukkan 20.00 um kvöldið. Fyrir marga hljómar það ekki vel, en ég get lofað ykkur því að það venst ótrúlega fljótt. Þó er ekki vitlaust að taka þetta í skrefum, byrja t.d. fyrst að borða ekkert eftir kl. 20.00 og ekk fyrr en kl. 08.00 (12/12), sleppa síðan morgunmatnum, og síðan smám saman minnka fæðugluggann. Einu sinni hélt maður að það væri svo mikilvægt að borða morgunmat, og ég stóð reyndar í þeirri meiningu að ég bara gæti ekki sleppt honum, ég myndi deyja. Núna er þetta þvílíkt frelsi, einfaldar lífið og sparar pening. Ég tek þó fram að mér finnst mjög gaman að fá mér góðan morgunmat og geri það núna bara á tillidögum, t.d þegar ég gisti á hótelum eða er að fara í lengri hjólatúra eða göngur.

En eru þá engir gallar? Ef ég á að hugsa eitthvað upp varðandi það, þá dettur mér helst í hug:

  1. Ef maður étur kolvetni tekur smá tíma að "endurstilla" kerfið og maður getur orðið orkulaus á æfingu daginn eftir
  2. Það er erfitt að fara út að borða því veitingastaðir eru seinir að kveikja á því að það geti verið business í þessu.

Annað kemur mér ekki til hugar. En jæja, þetta er sennilega farið að hljóma frekar brjálæðislega og margir farnir að hugsa að þetta sé nú ekkert líf. En í alvöru talað þá hefur þetta bara verið fínt. Reyndar hefur manni fundist þetta gaman. En hvað hef ég þá verið að borða upp á síðkastið? Hér tek ég að gamni saman matseðilinn fyrstu fjóra daga vikunnar og leyfi ykkur að fá hugmynd um hvernig keto matseðill lítur út hjá mér:

Mánudagur: 

Hádegi: Salat með kjúklingi, eggjum og allskonar gummsi + smá fiskur með slatta af laukfeiti.
Kvöldmatur: Fajitas með fullt af grænmeti og heimagerðu guacamole og ostasósu borið fram í salatblaði í stað hveitiköku. Namm!

Þriðjudagur:

Hádegi: Afgangur af fajitas.
Miðdegi: Aðeins meira fajitas.
Kvöldmatur: Steikt bleikja með blómkálsgratíni (með beikoni, rjóma, ostum ofl.) fersku salati og Vogaídýfu.
Kvöldhressing hjá Þórði: Keto brownies með þeyttum rjóma og myntute

Miðvikudagur: 

Hádegi: Afgangur af bleikju
Kvöldmatur: Saltaðir svínaskankar með súrsuðu grænmeti og sinnepi

Fimmtudagur:

Kl. 10.00: Eitt avocado
Kl. 12.00: Einn þunn sneið af hangikjöti til að smakka. Blandað salat með avocado, laxi, túnfiski, dressingu og allskonar.
Kl. 14.00: Smá tamarimöndlur og einn Nocco (geri þetta sjaldan).
Kvöldmatur: Kjötbollur í tómatmauki með steiktum hvítkálsstrimlum (í staðinn fyrir spaghetti).
Kvöldhressing: Keto smákökur með hnetum, kókosfeiti, eggjum smjöri og allskonar shit. Smá rjómi með.

Þar hafið þið það.

En ástæðan fyrir því að ég skrifa þetta er ekki vegna þess að ég haldi að allir eigi að vera á keto. Ég er ekki að reyna að þröngva þessu upp á neinn. En ég hvet fólk eindregið til að prófa eitthvað nýtt þegar kemur að mat. Vera opið fyrir nýjum hugmyndum. Prófa t.d. 30 daga vegan, lágkolvetnakúr eða eitthvað annað. Maður veit aldrei hvenær maður dettur inná eitthvað sem hentar mannig vel. Það er ekki nein ein leið að næra sig og ég hef tröllatrú á því að rótera reglulega í matnum. Alveg eins og á æfingum, maður á ekki alltaf að vera að gera það sama.....

Jæja þetta er orðið mun lengra en ég ætlaði mér. Góðar stundir.


Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap