Að eiga bíl, eða ekki
Það getur verið ótrúlega gott fyrir sálina að rölta í vinnuna á morgnana. |
Við erum búin að vera með afnot af bílaleigubíl síðan í nóvember, og nú eru tveir og hálfur mánuður eftir af samningstímanum. Við skiptum þessu þannig að þegar ég er með börnin, þá hef ég bílinn, og öfugt. Ég hef verið að nota hann meira upp á síðkastið en ég gerði í fyrstu. Ein ástæðan er sú að ég hef verið duglegur að fara í ræktina og tek þá gríslingana með mér. Þegar allt er á kafi snjó er meira en að segja það að dröslast með 2 börn bæinn á enda. Eins hefur bílinn komið sér vel í tengslum við starfsdaga í leikskóla og veikindi. Þetta er náttúrulega voðalega þægilegt.
Ég verð því að viðurkenna að ég er farinn að kvíða því svolítið að skila honum. Það verður smá átak að koma sér inn í hjóla/labba gírinn aftur- þetta er svo hrikalega þægilegt líf. Þegar það er snjólaust er þetta reyndar ekkert vandamál fyrir Brynleif því hann getur alveg hjólað eins og vindurinn. Það er annað með litla stýrið, það eru alveg 2 ár í að hún geti hjólað eitthvað af viti. Spurning hvort ég neyðist ekki bara til að tengja hjólakerruna aftan í nýja hjólið.
En sama hvað því öllu líður, þá er ég staðráðinn í að vera bíllaus áfram. Það er allavega ekki inn í myndinni í augnablikinu að fara að kasta peningum í að kaupa bíl og reksturinn á honum. Það er bara of mikill pakki og ég get alveg hugsað mér ýmislegt annað meira spennandi að gera við peningana mína. Það er líka þannig þegar maður hefur náð meiri tökum á peningamálunum og er hættur að eyða peningum í vitleysu, þá getur maður eiginlega ekki hugsað sér að snúa aftur í þann pakka að eiga ekki nóg fyrir öllum reikningum um hver mánaðarmót.
Annars er ég staddur heima í Brekku með börnunum og við höfum það gott. Fórum í fjárhúsin í morgun og stefnum á heimsókn í Heiði seinnipartinn. Svo eyddi ég gærkvöldinu í að skipuleggja hvað ég þarf að kaupa inn í nýju íbúðina (sama hvar hún verður). Það er spennandi áskorun að einfalda lífið og lágmarka draslið sem fylgir manni. Ég á ábyggilega eftir að skrifa meira um það hér hvernig mér gengur að minimalísera veröldina.
Ummæli