Skilnaður

Ég hef hvorki haft orku né löngun til að skrifa hér inn lengi. Ég er búinn að standa í hjónabandserfiðleikum nú í bráðum 2 ár og það hefur haft gríðarlega áhrif á sköpunarþörfina. En nú er þessu að öllum líkindum að ljúka- með skilnaði, því miður. Þetta er búin að vera þvílíka rússíbanareiðin og tilfinningarnar verið allt frá smá létti yfir að komast út úr vondum aðstæðum, yfir í hrikalegt ferðalag um dýpstu og svörtustu dali sálarinnar. Engin dagur eins, endalausar sveiflur og líðanin því miður yfirleitt alveg ömurleg.

Ég var að velta fyrir mér hvort ég ætti nokkuð að vera að skrifa um þetta hérna á blogginu þar sem þetta er svo voðalega persónulegt. Ég hef ekki ennþá fengið svar við því og læt því bara vaða. Það er ekki eins og þetta sé eitthvað leyndarmál. Til þess að það gagnist mér samt eitthvað ætla ég að reyna að enda pistlana á góðum nótum. Þá kemur þetta kannski í stað jákvæðnidagbókar sem einn ráðgjafi sagði mér að halda.

Það fyrsta sem ég ætla að skrifa jákvætt er að öllum hörmungum fylgir einhver uppsveifla. Ég kem sterkari út úr þessu öllu og með nýja sýn á lífið. Ný gildi, ný markmið. Ég veit hvað ég vil.

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap