Nú er Bjarni á nýju skónum

Ecco Gore-Tex hversdagsskór
Ég man þegar ég var í hlaupa- og þríþrautarpælingum var ég eitthvað að velta fyrir mér að breyta blogginu í eitthvað svona hlaupa/græju/gatchet dæmi. Í dag myndi það sennilega heita að vera áhrifavaldur. Alltaf þegar ég keypti dót skrifaði ég review og var á kafi í einhverjum pælingum. Þetta var reyndar farið að virka því þegar ég benti búðum á bloggið mitt átti ég auðveldara með að fá afslátt.

Nú er ég s.s ekkert í þessum pælingum ennþá en mér finnst að þessir nýju Ecco skór eigi alveg skilið að ég mæli með þeim. Eftir tímabundið atvinnuleysi og þröngan kost hef ég eiginlega ekki keypt mér nokkurn skapaðan hlut í meira en ár. Ég keypti enga nýja flík árið 2018, ef undan er skilið tvennar buxur sem ég keypti í Hagkaup og einn bol sem ég keypti í Crossfit Hamar. Það keypti ég fyrir peninga sem ég fékk í afmælisgjöf (ekki samt frá frúnni í Hamborg).

En allavega, UST gaf starfsmönnum sínum pening í jólagjöf og ég ákvað að fá mér nýja skó. Þá tókust á í mér sjónarmið um að vera töff eða að vera ekki töff, það er spurningin. Langaði helst í Chippewa boots frá Kormáki og Skyldi sem kosta 39.500 kr. Ég lét þó praktíkina ráða að lokum, enda geng ég mikið flesta daga. Þetta eru að ég held þægilegustu skór sem ég hef gengið í og fá fullt hús fyrir það. Hvernig þeir passa við minn metropolitan fatasmekk veit ég ekki. Fokk ég þarf að fara að fá mér stílista. Kannski enda ég bara í að vera alltaf í útivistarbuxum og skel. En nú er ég að verða búinn að koma upp um hvað ég er bilaður.

Annars hef ég verið að lesa frekar mikið. Búinn með 60 kíló af sólskini eftir Hallgrím Helga (mæli eindregið með) og er hálfnaður með nýju bókina hennar Sigríðar Hagalín sem er mjög grípandi og flott. Þetta hefur komið í veg fyrir að ég lesi þær heimspekibækur sem ég var búinn að ætla að moðast í gegnum og rykfalla nú á náttborðinu. Svo langar mig reyndar mikið til að kynna mér Carl Jung betur. Finnst t.d. kenningar hans um drauma áhugverðar. Því hef ég aðeins meira verið að reyna að rifja upp á morgnana hvað í andskotanum mig var að dreyma.

Dreymdi um daginn að Einar Guðmann var nýbúinn að fara í fitusog en var að missa sig í piparkökum og var búinn að bæta mjög á sig. Kominn með veglegan björgunarhring. Síðan dreymdi mig að ég hefði mælt með einhverri fartölvu við Egil og hann varð mjög fúll þegar við komumst að því að það var ekki íslenskt lyklaborð. Við þurftum að fara að redda einhverjum límmiðum. Svo hefur mig verið að dreyma eitt og annað vinnutengt. Það hlýtur að vera eitthvað í þessu. Verð að fara að skrifa þetta niður.

Jákvæðni #6 Hef verið að breyta um taktík í ræktinni og er farinn að sjá árangur.


Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap