Afslöppun
Ætlaði að hlaupa í gegnum göngin í morgun (opnunarhátíð Vaðlaheiðarganga) en svo var bara svo hrikalega freistandi að hella uppá, grípa tölvuna, leggjast upp í rúm og kíkja á fréttamiðlana. Ætla síðan að halda áfram að lesa í Hið heilaga orð eftir Sigríði Hagalín sem ég byrjaði á í gærkvöldi. Hún lofar góðu. Ætla að hafa það að mestu rólegt í dag en maður kannski reynir að þrífa bílinn eða eitthvað svona rétt til að morkna ekki.
En nú er ég farinn að velta mér uppúr því hvað ég ætla að gera seinna í dag og því orðinn eins og flestar manneskjur, sem halda að það sem koma skuli hljóti að vera merkilegra en það sem nú er í gangi. En þannig missir maður af lífinu sem aldrei er ekki núna.
Jákvæðni #4 Við komum peningalega ekki illa út úr þessu hjónabandi og þurfum því ekki að hafa of miklar áhyggjur af fjármálum.

Ummæli