Undirbúningur undir sýningu


Er búinn að ganga með sýningu í maganum upp á síðkastið. Langar að gera 10 litlar myndir úr Mývatnssveit og sýna þær þar um slóðir. Myndirnar eiga að vera 14x19cm án ramma og 27x30cm tilbúnar á sýninguna og til sölu.

Ég er að spá í að hafa einhverja samfellu í þessu og hafa myndirnar allar í svipuðum dúr, helst draumkenndum og mjúkum. Ég veit ekki afhverju, kannski er ég að fjarlægjast sveitina og hún að verða móðukenndari. Ég er samt alltaf eitthvað að mála hana blessaða.

Til að ná þessu betur fram er ég líka að spá í að takmarka litanotkunina, eins og á myndinni hér að ofan, í hana notaði ég eiginlega bara 4 liti. Það er hægt að gera ótrúlega mikið með fáum litum, þetta snýst meira um litastyrk (value) og hvar þú raðar heitum vs. köldum litum (kaldir í fjarska og heitir nær).

Myndin hér að ofan, sem ég var alls ekki ánægður með en er að venjast, er dæmi um hvernig maður skapar fjarlægð með mismunandi litastyrk. Fjallið þokukennt í fjarska, eyrin í sterkari lit og loks hraunbakkinn dekkstur. Hann ýtir hinu draslinu aftar í myndflötinn.

Jæja sjáum hvernig mér gengur að klára þetta verkefni og hvort ég geti haldið mig við eitthvað þema lengur en í 4 mínútur.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap