Tvær af 10 komnar

Settist niður í kvöld og málaði mynd. Byrjaði á því að gera misheppnaða mynd af Búrfelli með Reykjahlíð í forgrunni. Skipulagði þetta ekki nægilega vel og endaði í tómu tjóni. Tók þá gamalt klassískt mótíf af Bláfjalli og Sellandafjalli með Kráká í forgrunni. Allt málað með stórum flötum pensli og ekkert teiknað á undan- myndin er því frekar hrá og laus í sér en það gefur einhvern skemmtilegan blæ.

Að sjálfsögðu náði ég ekki að hemja mig í litunum og hún er því nokkuð ólík síðustu mynd. Samfellan sem ég hafði séð fyrir mér í myndunum fyrir sýninguna er því strax að fara fyrir lítið og ósennilegt að ég geti leyft mér að hafa þær allar í eins römmum. En mér er alveg sama. Myndin er fín.

Annars sit ég og hlusta á Je Suis Comme Je Suis með Juliette Gréco og ferðast um Monte Martre í huganum. Nú er að verða ár síðan Guðrún bauð mér til Parisar og mig langar til baka. Heimsóknin hafði mikil áhrif á mig og ég lærði að elska borgina. Þetta hellist yfir mann þegar maður fer að mála aftur. Væri til í að leigja litla risíbúð þarna einhverntíman í mánuð eða svo og skrifa og mála. Reykja vindla, drekka tvöfalda espresso og drekka í mig mörghundruð ára menningarleðju.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap