Róleg helgi að baki

Fórum í sveitina til mömmu og áttum notalega stund um helgina. Dvöldum mest við át og útaflegu en ég fór reyndar í ræktina á laugardaginn. Guðrún þurfti svo að vinna allan sunnudaginn en ég gerði ekki neitt af mér á meðan. Lá bara í sófanum í hálgerðu rússi. Lét mömmu og Helgu Guðrúnu um börnin og starði út um gluggann og dottaði til skiptist.

Ég var búinn að ætla að mála einhver reiðinnar býsn um helgina en það fór nú öðruvísi. Þetta urðu 3 myndir í allt, ein af Vogum, ein úr Námaskarðinu og svo ein af kind með 2 lömb- Bláfjall í baksýn. Kindamyndin vakti nú einvherja lukku hjá þeim sem sáu hana en ég held að Vogamyndin og Námaskarðið verði ekkert til sýnis. Ætla helst að setjast niður í kvöld og mála allavega eina í viðbót. Maður verður að halda sér að verki ætli maður að ná upp í þessa sýningu.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap